Vegferðin

 

Á morgun verður frumsýndur fyrsti hluti heimildamyndaflokksins Draumurinn um veginn, sem fjallar um pílagrímsgöngu Thors Vilhjálmssonar til Santiago de Compostela, en frumsýningin verður í þeirri sömu borg. Í Víðsjá í dag verður rætt við Erlend Sveinsson, leikstjóra myndarinnar af því tilefni.  Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson, liðsmenn hljómsveitarinnar Moses Hightower koma í heimsókn með nýja plötu sína, Búum til börn og segja frá sinni músík.  Nýr pistlahöfundur, Berglind María Tómasdóttir, kveður sér hljóðs og tala undir yfirskriftinni Ó 101 Reykjavík.  Sagt frá fágætu handriti að fágætri sögu eftir Hemingway ungan.  Pétur Gunnarsson heldur áfram lestri bókar sinnar Persónur og leikendur.


miðvikudagur 28. júlí 2010
« Til baka Deila

ÞÆTTIR

HLAÐVARP

HLEKKIR