Rætt við Kristján Árnason bókmenntafræðing, sem um helgina heldur erindi á málþingi að Nýp á Skarðsströnd um þýðingar og skáldskap Matthíasar Jochumssonar. Pétur Grétarsson flytur vikulegan pistil. Upplýst um möguleikann á því að fylgjast með tónleikum fiðluleikarans Joshua Bell annað kvöld á Verbier-tónlistarhátíðinni í Sviss án þess að fara úr eldhúsinu heima. liveweb.arte.tv er lausnin. Forvitnast um þýðingar Halldórs Laxness á skáldsögum Hemingway. Pétur Gunnarsson heldur áfram lestri bókar sinnar, Persónur og leikendur.