Litið inn í Norræna húsið og klippimyndir Karen Bit Vejle skoðaðaðar, á sýningunni Málað með skærum. Gísli Magnússon les þýðingu sína á sögum frá fjarlægum slóðum. Fjallað verður um Parísarheilkennið og önnur heilkenni sem geta heltekið ferðamenn sem hætta sér út í hinn stóra heim. Pétur Gunnarsson heldur áfram að lesa skáldsögu sína, Persónur og leikendur. Tónlistarmennirnir Django Bates og Elisabeth Vatn gefa frá sér nokkur hljóð.