Hvað ertu nú að gera?

 

Rætt við Erling Jónsson myndhöggvara um haustsýningu Listasafns Sigurjóns Ólafssonar sem ber titilinn Erlingur minn, hvað ertu nú að gera? Hugað verður að seríu Ólafs Elíassonar,  sem listamaðurinn hefur gefið Listasafni Íslands. Anna María Bogadóttir flytur pistil frá arkitektatvíæringnum í Feneyjum. Spjallað verður við Úlfar Þormóðsson sem rýnir í Biblíuna í nýrri bók sinni, Þú sem ert á himnum. Rætt við Anton Helga Jónsson um ljóðabókina Ljóð af ættarmóti sem hefur að geyma 82 ljóð Antons. Eydís Franzdóttir segir frá 15:15 tónleikaseríunni sem hefur göngu sína að nýju næsta sunnudag. Hugað verður að nýbreytni í útsendingum frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í vetur og Emma Bell sópransöngkona lætur í ljós sitt skína..


fimmtudagur 16. sept. 2010
« Til baka Deila

ÞÆTTIR

HLAÐVARP

HLEKKIR