Blá síðrómantík á síðsumri

 

Í síðustu viku voru gallerí til umræðu í Víðsjá, bætt verður við þá umræðu í dag og rætt við Sigurð Guðmundsson myndlistarmann og rithöfund en hann hefur starfað hér heima og í útlöndum um áratugaskeið og hefur mikla reynslu af galleríum. Einnig verður rætt við Hlín Helgu Guðlaugsdóttur sýningarstjóra hönnunarsýningarinnar Náttúran í hönnun sem stendur yfir í sumar í Ljósafossstöð við Sogið. Víðsjá heimsótti hóp ungs tónlistarfólks sem leikur píanókvintetta í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld og Þröstur Helgason flytur pisti þar sem blár litur er í aðalhlutverki. Að venju lýkur Víðsjá svo með kafla úr skáldsögunni Persónur og leikendur eftir Pétur Gunnarsson.


þriðjudagur 27. júlí 2010
« Til baka Deila

ÞÆTTIR

HLAÐVARP

HLEKKIR