Miðvikudaginn 1. september klukkan 15.03 á Rás 1 hefst lestur nýrrar útvarpssögu. Það er Húsið eftir Guðmund Daníelsson. Jóhann Sigurðarson les. – Guðmundur var á sinni tíð eitt helsta og afkastamesta sagnaskáld þjóðarinnar. Hann gaf fyrst út ljóðabók 1933, síðan fjölda skáldsagna og ýmissa annars konar rita. Á þessu hausti er öld frá því Guðmundur fæddist og er Húsið flutt nú af því tilefni, en hann lést 1990. Hann var Rangæingur að uppruna og efnivið í sögur sínar sækir hann tíðum til Suðurlands og sögu sunnlenskra byggða. Það á við um Húsið sem út kom 1963. Sagan gerist í þorpinu Brimveri, sem augljóslega á Eyrarbakka að fyrirmynd. Frægasta bygging á þeim stað er einmitt Húsið (Bólstaður í sögunni), heimili verslunarstjórans, A. C. Henningsens. Sagan segir frá fjölskyldu hans og gerist í upphafi tuttugustu aldar. Á sögutímanum hallar undir fæti fyrir Brimveri og verslun staðarins. Kaupfélag hefur þar starfsemi, en meiru skiptir að nú verður breyting í samgönguháttum sem veldur því að Brimver er ekki lengur miðstöð héraðsins, í staðinn fær Hlaðbær (Selfoss) ofar í héraðinu það hlutverk. Þangað snúa bændur viðskiptum sínum í miklum mæli. Hnignun Brimvers blasir við.
Henningsen verslunarstjóri getur ekki staðið gegn þessum breytingum, dregur sig í hlé og sinnir æ meir safni sínu af eggjum og uppstoppuðum fuglum. Tryggva Bólstað, frænda frúarinnar, mistekst að snúa taflinu við og fjölskyldan fer halloka á flestum sviðum, hana skortir þrótt til að bregðast við áskorunum hins nýja tíma. - Margar persónur koma við sögu í Húsinu og er þeim lýst á einkar lifandi hátt, enda var Guðmundur Daníelsson mikill sögumaður.