Stofnunin

 

Fimmtudaginn 2. september  klukkan 21.30 verður á Rás 1 fyrri lestur tveggja lestra kvöldsögu, sem er hin síðasta  á þessu sumri. Sagan er Stofnunin eftir Geir Kristjánsson. Höfundur les . – Stofnunin var prentuð í samnefndri smásgnabók Geirs sem út kom 1956. Hún þótti miklum tíðindum sæta á sínum tíma, enda var hún nýjung í íslenskum sagnaskáldskap sem mönnum hugnaðist misjafnlega. Hér segir frá nafnlausum manni á dularfullri stofnun, og er hann „sá eini á Stofnuninni sem ekki var tölusettur. Það var bagalegt á matmálstímanum þegar súpunni var útdeilt, því hann lenti alltaf síðastur í röðinnni  við eldhúslúguna.“  Hver er þessi stofnun, fangelsi, vinnuhæli, kannski þjóðfélagið sjálft?  Í sögunni er vissulega brugðið upp óvenjulegri og næsta nöturlegri  mynd  af aðstæðum sem eru einstakllngnum í senn  óskiljanlegar  og óviðráðanlegar með öllu. Þótti mönnum sem Geir Kristjánsson hefði með þessari sögu fært anda Franz Kafka, hins m ikla forgöngumanns nútímaskáldskapar á tuttugustu öld,  inn í íslenskar bókmenntir.  Stofnunin   var áður á dagskrá 1975.

« Til baka Deila

HLEKKIR