Saga Laugarness, selir, Bardúsa Hvammstanga, og maríuerla

 

Í þættinum er litast um  á  Laugarnesi og rifjað upp sitthvað fróðlegt sem tengist þeim stað.  Síðan er haldið  í fyrrum verslun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga  en þar má nú sjá myndband um seli og fleira þeim tengt á Selastri Íslands. Í næsta húsi er svo skemmtilegt verslunarminjasafn og handverksbúð sem nefnist Bardúsa. Að lokum fræðumst við um maríuerlu sem er fugl sólmánaðar.

Leiðin liggur fyrst að bæjarhólnum á Laugarnesi.  Laugarness var fyrst getið í Njálu, á þeirri frásögn má sjá að þegar á 10. öld hefur því landi verið skipt úr landnámsjörðinni Reykjavík og gert að sjálfstæð jörð sem var ein sú stærsta á Reykjavíkursvæðinu. Það er talið að Hallgerður [Höskuldsdóttir] langbrók hafi sest að í Laugarnesi eftir víg Gunnars að Hlíðarenda í Fljótshlíð en hún hafði fengið jörðina eftir Glúm, fyrri mann sinn. Við fræðumst um menn og gróður á Laugarnesi

Wikipedia um Laugarnes

Selasetri Íslands á Hvammstanga opnaði fyrir 5 árum í glæsilegu steinhúsi sem tilheyrði verslun Sigurðar Pálmasonar, þar var rekin verslun fram til 1982. Í setrinu má að vonum finna ýmsan fróðleik um seli en einnig sitt hvað fleira. Í kjallaranum er meðal annars hægt að horfa á myndband af selum að leik í sjónum og hlusta á selahljóð og á veggjum má lesa ýmsan fróðleik um þetta áhugaverða dýr . Við fræðumst um seli. 

Selasetur

Í gömlu pakkhúsi við höfnina á Hvammstanga er Verslunarminjasafn með Krambúð Sigurðar Davíðssonar innanborðs nákvæmlega eins og hún var þegar búðin hætti starfsemi á áttunda áratug síðustu aldar. Silkisokkar, tóbak, mjaltafötur, postulín og fjölbreyttur fatnaður frá árunum 1950-70 ægir saman og og mikið af því hangir á bitum í loftinu. Í sama húsnæði  er Bardúsa  handverkshús þar sem heimamenn hafa til sölu ýmiss handverk meðal annars einkenni Hvammstanga, steinakarlana.

Bardúsa

Að lokum fræðumst við um fugl sólmánaðar maríuerlu. Þetta er algengur fugl á Íslandi, á sumrin er stofnstærðin  um 100.000 pör. Maríuerla eru farfuglar sem hafa vetursetu í Afríku. Hún kemur hingað upp úr miðjum apríl og varptíminn er síðan seinni hluta maí og fyrri hluta júní. Maríuerla verpir um 6-7  eggjum í húsum og mannvirkjum.  Kjörsvæði  hennar eru kringum vatn og við mannabústaði en einnig í kjarrlendi og í hraunum.

Maríuerla

En við byrjum að vanda á spurningu dagsins og spyrjum Þórsmörk. Svæðið afmarka þrír jöklar hverjir eru þeir?  Tvær miklar jökulár setja  svip á svæðið  hvað heyta þær?  Hvaðan er nafn staðarins dregið og hvað heyta gýgarnir tveir og hraunið sem nýverið myndaðist efst á Fimmvörðuhálsi?


laugardagur 17. júlí 2010
« Til baka Deila

HLAÐVARP

HLEKKIR