Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Við pælum í forsetakosningunum með ungu fólki sem er að fara kjósa í fyrsta sinn. Þau Embla Bachmann og Jörundur Orrason halda úti hlaðvarpinu Kjóstu betur og við fengum að heyra af því sem þau hafa lært á vinnu sinni við hlaðvarpið. Rapparnir Saint Pete og Clean hafa verið að gera það gott í íslensku tónlistarsenunni og stefna alla leið á toppinn.
Garðyrkjuþáttaröð í umsjón Guðríðar Helgadóttur. Í þáttunum fjallar hún um sáningu matjurta, klippingu á berjarunnum og ýmislegt annað sem lýtur að garðyrkju og heilsar upp á fólk sem er að rækta hitt og þetta. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Í þessum þætti sýnir Gurrý hvernig best er að taka græðlinga, hugar að uppskeru í matjurtagarði og fer í heimsókn í blómlegan garð í Fossvogi.
Stuttmyndir sem gerðar eru eftir handritum krakka sem að send voru inn í Sögur.
Sigrúnu og Ísaki hundleiðist og reyna að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera. Það breytist fljótt þegar óvæntan gest ber að garði.
Höfundur: Guðrún Anna Jónsdóttir, 12 ára
Leikstjórn og framleiðsla: Anna Karín Lárusdóttir
Íslensk kvikmynd frá 2023 í leikstjórn Elsu Maríu Jakobsdóttur. Í matarboði í Vesturbænum ákveða sjö vinir að fara í stórhættulegan samkvæmisleik. Viðstaddir leggja símana á borðið og fallast á að öll símtöl og skilaboð sem berast verði deilt með samkomunni til að sanna að ekkert þeirra hafi nokkuð að fela. Aðalhlutverk: Hilmir Snær Guðnason, Nína Dögg Filippusdóttir, Gísli Örn Garðarsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Aníta Briem og Hilmar Guðjónsson. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára. Myndin er sýnd á sama tíma á RÚV 2 með enskum texta.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
Bresk sakamálamynd byggð á sögu eftir Caroline Graham þar sem Barnaby lögreglufulltrúi glímir við morðgátur í ensku þorpi. Meðal leikenda eru Neil Dudgeon og Nick Hendrix. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Myndin er hluti af þemanu Sakamálasumar.
Árleg fuglahræðuhátíð í Midsomer tekur á sig aðra og verri mynd þegar sumar fuglahræður reynast hafa raunveruleg lík að geyma.
An Icelandic film from 2023. At a dinner party in Vesturbær, seven friends decide to play a dangerous game. They put their phones on the table and agree that all incoming calls and messages will be shared with the party to prove that none of them have anything to hide. Starring: Hilmir Snær Guðnason, Nína Dögg Filippusdóttir, Gísli Örn Garðarsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Aníta Briem and Hilmar Guðjónsson. The film is not suitable for children aged under 12.