Hlusta

simakosning info

Senda inn efni

Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is

Þátturinn

mánudagur 8. feb. 2010

Uppselt á aðalkeppni Eurovision

 

Evróvisjón aðdáendur voru snarir í snúningum í morgun, þegar miðasala hófst á aðalkeppnina 29. maí í Osló í morgun. Á aðeins 20 mínútum seldist upp, en 18 þúsund miðar voru í boði á netinu. Miðarnir kostuðu á bilinu 17-35 þúsund íslenskar krónur. Viðurkenndir aðdáendaklúbbar keppninnar í hinum ýmsu löndum hafa fengið frátekna miða, en enginn slíkur klúbbur er á Íslandi.

Enn eru til  miðar á forkeppnirnar og búningarennsli. Hægt er að kaupa miða hér. Þeir kosta frá 6-13 þúsund krónur.

Hera Björk og félagar keppa í fyrri forkeppninni 25. maí ásamt Serbíu, Finnlandi, Rússlandi, Grikklandi, Slóvakíu, Bosníu-Hersegóvínu, Moldóvu, Möltu, Portúgal, Makedóníu, Lettlandi, Hvíta-Rússlandi, Belgíu, Póllandi, Albaníu og Eistlandi. Ísland keppir í seinni hluta riðilsins, en enn á eftir að draga um nákvæma röð á atriðunum.

Í seinni forkeppninni 27. maí keppa Sviss, Litháen, Georgía, Tyrkland, Írland, Slóvenía, Svíþjóð, Úkraína, Holland, Búlgaría, Króatía, Danmörk, Aserbaídsjan, Kýpur, Ísrael, Rúmenía og Armenía.





« Til baka