Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is
Hera Björk Þórhallsdóttir verður fulltrúi Íslands í Evróvisjón í Noregi í vor með lagið Je Ne Sais Quoi. Lagið er eftir Heru Björk og Örlyg Smára, sem hefur tvisvar áður átt framlag Íslands í keppninni; This Is My Life árið 2008 og Tell Me árið 2000.
Úrslitin urðu ljós eftir símakosningu í kvöld, en í 2. sæti varð lag Óskar Páls Sveinssonar og Bubba Morthens, One More Day, í flutningi Jógvans Hansens.
Hera Björk og Örlygur voru í skýjunum að keppni lokinni í kvöld. Hér má sjá viðtal við þau.