Hlusta

simakosning info

Senda inn efni

Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is

Höfundar

mánudagur 18. jan. 2010

Sigurjón Brink - Waterslide

 

Sigurjón Brink (Sjonni Brink) byrjaði snemma að semja lög og flytja tónlist.

Hann var trommari í hljómsveitinni In Bloom, sem átti m.a. lagið Pictures. Árið 1994 kom út fyrsta plata þeirra, sem bar nafn hljómsveitarinnar sjálfar. Þeir félagar fóru snemma í útrás til Bandaríkjanna. „Við áttum meðal annars titillag sjónvarpsmyndarinnar Missing Brendan," segir Sjonni.

Sigurjón var seinna í hljómsveitinni Flavors sem gaf út breiðskífu 2003.  Sigurjón samdi öll lögin á plötunni og einnig flesta textana.  Að þessu sinni söðlaði hann um og gerðist aðalsöngvari hljómsveitarinnar og gítarleikari. 

„Ég hef einnig sungið mikið hér og þar og verið í fjölmörgum leiksýningum og söngleikjum. Þar má nefna Le Sing, Cuckoos Cabaret, Footloose og Woychek  í Borgarleikhúsinu." Sjónni er þar að auki einn af stofnendum Vesturports  og tók þátt í að semja tónlistina við leikritið Brim í uppsetningu leikhópsins. Þá er Sjonni jafnan fastasöngvari á stórtónleikum og nægir þar að nefna Sgt. Peppers tónleikana með Sinfó, tónleika tileinkaða John Lennon í Háskólabíó, Eagles í Borgarleikhúsinu og minningartónleikunum um Vilhjálms Vilhjálmsson.

Nú um jólin kom út fyrsta sólóplata Sjonna, Sjonni Brink. Á henni eru lög eftir hann sjálfan og Guðmund Jónsson í Sálinni, meðal annars lagið Brosið þitt lýsir mér leið.

Sjonni hefur áður tekið þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins. „Árið 2005 söng ég lagið Hjartaþrá eftir Bryndísi Sunnu og ári síðar lagið Áfram, en það sömdum við Bryndís Sunna saman."  Bæði lögin kepptu í úrslitum.

Auk þess að semja eigin tónlist hefur Sjonni  einnig samið lög fyrir aðra listamenn, eins og Skítamóral. Hann starfar í dag sem tónlistarmaður og útvarpsmaður á Bylgjunni.


 Hlusta á lagið


« Til baka