Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is
Rögnvaldur Rögnvaldsson, eða Rögnvaldur gáfaði eins og hann er oftast kallaður, borðar helst ekkert sem vex í sjó. Hann hefur haldið með með enska knattspyrnuliðinu Coventry í gegnum súrt og sætt, en þó aðallega súrt.
Rögnvaldur fór í gegnum skyldunám á biðlundinni en hefur síðan dúxað hvað eftir annað í skóla lífsins. Hann var einnig í hljómsveitinni Briminnstunga sem átti að vera andstæðan á allan hátt við Brimkló.
Rögnvaldur hefur aldrei farið í ljós eða líkamsrækt.
Hlusta á lagið