Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is
Örlygur Smári er sjálfmenntaður tónlistarmaður. Á sínum yngri árum var hann í hljómsveitum, en fór svo um aldamótin og lærði hljóðupptökur í Stokkhólmi. Frá því að Örlygur flutti aftur heim árið 2005 hefur hann starfað sem tónlistarmaður, lagahöfundur og upptökustjóri í stúdíóinu sínu, Poppvélinni. Meðal nýrra laga eftir Örlyg eru flest nýjustu lög Páls Óskars og Haffa Haff.
Örlygur er sigursæll í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Hann gerði sér lítið fyrir og vann Söngvakeppnina í fyrsta sinn sem hann sendi inn lag, en það var lagið Tell Me árið 2000. Átta árum síðar vann hann aftur með laginu This Is My Life, sem Eurobandið flutti, og það kom Íslendingum upp úr undankeppni Eurovision í fyrsta skipti.
„Mér finnst Eurovision bara svo skemmtilegt, ætli það sé ekki þess vegna sem ég tek þátt. Mér finnst líka sjálfsagt að starfandi lagahöfundar sendi eitthvað inn í svona keppni," segir Örlygur. „Svo er bara alltaf mikið ævintýri að fara út fyrir Íslands hönd í Eurovision. Það er önnur ástæða þess að ég tek aftur og aftur þátt."
Í ár tóku Örlygur og Hera Björk höndum saman og sömdu saman lagið Je Ne Sais Quoi. Margir velta því eflaust fyrir sér af hverju titill, og um leið hluti viðlagsins, er á frönsku. „Je Ne Sais Quoi er ekki bara franska, heldur líka orðatiltæki á ensku," segir Örlygur. „You have a certain 'je ne sais quoi' about you þýðir að viðkomandi hafi e-ð við sig sem maður veit samt ekki hvað er. Okkur fannst sniðugt og pínu nýstárlegt að nota það," segir hann.
Örlygur ber samstarfi þeirra Heru góða söguna. Hún sé frábær söngkona og þegar hún sagðist hafa áhuga á því að senda inn lag hafi ekki staðið á honum. „Svo er svo skemmtilegt að vinna með henni og ég er heppinn að fá að gera það. Það er alltaf fjör í kringum hana og hún er svo hugmyndarík."
Hera Björk Þórhallsdóttir stökk fram á sjónarsviðið í íslenska tónlistarbransanum með þátttöku sinni í söngleiknum Rocky Horror, sem settur var upp árið 1995 í Loftkastalanum. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum söngleikjum, var þáttastjórnandi Stutt í spunann, sem sýndur var í Sjónvarpinu við miklar vinsældir, sungið með verðlaunakórnum Schola Cantorum og unnið með mörgum af stærstu stjörnum íslensks tónlistarlífs. Hera Björk gaf út sína fyrstu sólóplötu árið 2000, Ilmur af jólum, sem fékk mjög góðar viðtökur og dóma. Sex árum síðar kom út önnur sólóplata hennar, sem hét einfaldlega Hera Björk.
Árið 2004 hitti Hera Björk Cathrine Sadolin, en hún er danskur frumkvöðull í söngtækni sem heitir Complete Vocal Technique. „Ég féll strax fyrir þessari tækni og ákvað að flytja til Kaupmannahafnar til að læra hana betur," segir Hera. Árið 2008 lauk hún námi frá Complete Vocal Institute og kennir tæknina bæði á Íslandi og í Evrópu.
Hera Björk hefur farið út fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, en ekki sem aðalsöngkona. Hún var í bakraddateymi Eurobandsins árið 2008, auk þess að vera raddþjálfari hópsins. Árið 2009 tók hún þátt í dönsku forkeppninni fyrir Eurovision og var aðalsöngkona lagsins Someday. Það hafnaði í 2. sæti og náði miklum vinsældum í kjölfarið, meðal annars var það eitt af fimm vinsælustu lögunum á Íslandi í yfir 20 vikur samfleytt. „Svo nú nýlega kusu margir aðdáendaklúbbar Eurovision lagið það besta sem ekki komst í aðalkeppnina í Moskvu," segir Hera.
Hera er fjölhæf söngkona og syngur jafnt popptónlist, jazz, r&b, rokk og klassísk lög. Nú vill hún láta reyna enn meira á fjölhæfni sína og þreytir frumraun sína sem lagahöfundur í Söngvakeppni Sjónvarpsins. „Ég hef oft samið texta, en núna vil ég prófa að semja tónlistina sjálf," segir Hera, en Je Ne Sais Quoi er fyrsta lagið sem hún semur í samvinnu við aðra. „Ég er auðvitað mjög spennt að sjá hvernig laginu vegnar í keppninni."
Hlusta á lagið