Hlusta

simakosning info

Senda inn efni

Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is

Höfundar

þriðjudagur 5. jan. 2010

Matthías Stefánsson - Out Of Sight

 

Matthías Stefánsson nam fiðluleik á Akureyri og við Tónlistarskólann í Reykjavík og gítarleik við Tónlistarskóla FÍH.  Hann er lausráðinn fiðluleikari við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, kennir á fiðlu við Tónlistarkóla Eddu Borg og leikur með hljómsveitunum Pöpunum og South River Band.

Hann hefur tekið þátt í fjölda leikrita og söngleikja sem tónlistarmaður hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslensku Óperunni og Íslenska dansflokknum, meðal annars í Boðorðunum níu, Chicago, Kabarett, Annie, Túskildingsóperunni, Söngvaseið, Fridu, Jesú litla og Velkomin heim.

Matthías tók einnig þátt í Gullaldarsýningu Björgvins Halldórssonar á Broadway 2005, Tinu Turner sýningu á Broadway 2006, stórtónleikum Bo og sinfó í Laugardalshöllinni, Jólatónleikum Bo 2007, afmælistónleikum SSSól 2007, minningartónleikum Vilhjálms Vilhjálmssonar, Eagles tónleikar í Háskólabíói 2008.  Hann hefur leikið á ýmis hljóðfæri inn á fjölmargar plötur, þar á meðal fyrir Sigur Rós, Björgvin Halldórsson, Pál Rósinkranz, Ríó Tríó, Jóhann Friðgeir, Ragga Bjarna, Helga Björns, Bjarna Ara, Brimkló, Ellen Kristjáns, Sniglabandið, SSSól og marga fleiri.


 Hlusta á lagið


« Til baka