Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is
Jóhannes Kári er 42 ára Breiðhyltingur og hefur verið áhugamaður um tónlist frá barnæsku. Hann byrjaði snemma að læra á píanó og samdi fyrsta "verkið" 8 ára.
Jóhannes Kári hefur alltaf átt auðvelt með að búa til lög. "Þau hafa alltaf komið áreynslulaust og reyndar hefur þetta stundum verið hálfgerður annmarki. Ég er kannski staddur í Bónus þegar mér dettur einhver laglína í hug og þá verð ég að þjóta út í bíl til að skrifa niður eða taka upp á band," segir Jóhannes.
Hann telur keppnina góðan vettvang fyrir þá sem eru ekki vel tengdir inn í tónlistarheiminn. Jóhannes Kári tók galvaskur þátt í fyrstu Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 1986, þá um 19 ára gamall. "Ég komst ekki inn með lagið og var mjög hissa á því," segir hann kíminn.
Í ár á hann hinsvegar tvö lög, annars vegar You Knocked Upon My Door, sem Sjonni Brink flytur þann 9.janúar og hins vegar Þúsund stjörnur, sem Arnar Jónsson flytur 23.janúar. "Nú tek ég þátt í Söngvakeppninni til gamans. Það er skemmtilegt að kynnast heimi sem er svo gjörólíkur þeim sem maður á að venjast."
Jóhannes Kári er augnlæknir að mennt og er sérmenntaður í laseraugnlækningum. Hann er kvæntur Ragnýju Þóru Guðjohnsen, lögfræðingi og doktorsnema í uppeldis- og menntunarfræði við HÍ og þau eiga þrjú börn.
"Lögin eru bæði ástarljóð til konunnar í lífi mínu."
Hér er hægt að hlusta á lag Jóhannesar, You Knocked Upon My Door.
Hlusta á lagið