Hlusta

simakosning info

Senda inn efni

Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is

Höfundar

mánudagur 18. jan. 2010

Jóhannes Kári Kristinsson - Þúsund stjörnur

 

Jóhannes Kári er 42 ára Breiðhyltingur og hefur verið áhugamaður um tónlist frá barnæsku. Hann byrjaði snemma að læra á píanó og samdi fyrsta "verkið" 8 ára.

Jóhannes Kári hefur alltaf átt auðvelt með að búa til lög. "Þau hafa alltaf komið áreynslulaust og reyndar hefur þetta stundum verið hálfgerður annmarki. Ég er kannski staddur í Bónus þegar mér dettur einhver laglína í hug og þá verð ég að þjóta út í bíl til að skrifa niður eða taka upp á band," segir Jóhannes. 

Hann telur keppnina góðan vettvang fyrir þá sem eru ekki vel tengdir inn í tónlistarheiminn. Jóhannes Kári tók galvaskur þátt í fyrstu Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 1986, þá um 19 ára gamall. "Ég komst ekki inn með lagið og var mjög hissa á því," segir hann kíminn. 

Í ár á hann hinsvegar tvö lög, annars vegar You Knocked Upon My Door, sem Sjonni Brink flutti þann 9.janúar, en komst ekki í úrslit, og hins vegar Þúsund stjörnur, sem Arnar Jónsson flytur 23. janúar. "Nú tek ég þátt í Söngvakeppninni til gamans. Það er skemmtilegt að kynnast heimi sem er svo gjörólíkur þeim sem maður á að venjast."

Jóhannes Kári er augnlæknir að mennt og er sérmenntaður í laseraugnlækningum. Hann er kvæntur Ragnýju Þóru Guðjohnsen, lögfræðingi og doktorsnema í uppeldis- og menntunarfræði við HÍ og þau eiga þrjú börn.

"Lögin eru bæði ástarljóð til konunnar í lífi mínu."


 Hlusta á lagið


« Til baka