Hlusta

simakosning info

Senda inn efni

Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is

Höfundar

mánudagur 11. jan. 2010

Haraldur V. Sveinbjörnsson - Gefst ekki upp

 

Haraldur Vignir er uppalinn í Kópavoginum og í tónlistarskólanum þar lærði hann á píanó frá 8 ára aldri. Hann samdi sína fyrstu slagara aðeins 10 ára og setti á kassettu fyrir vini og vandamenn. 

Síðar lærði Haraldur tónsmíðar í Tónlistarskólanum í Reykjavík og í Lundi Svíþjóð 1999-2004.   

Haraldur hefur starfað með Mönnum ársins síðan 2005 og gáfu þeir félagar út sína fyrstu plötu 2008.  Sú hlaut góðar viðtökur og var meðal annars lagið 12 Steps to the Liquor Store mikið spilað á Rás 2. Haraldur er í hljómsveitinni Dead Sea Apple, sem hefur starfað um nokkurt skeið með hléum. „Við höfum gefið út tvær plötur og reyndum meira að segja að meika það í útlöndum," segir Haraldur.

Haraldur hefur tvisvar verið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Fyrst var hljómsveitin Dead Sea Apple tilnefnd árið 1997 í flokknum Bestu nýliðarnir. Árið 2005 var svo tónverk Haraldar, Sjö byltur svefnleysingjans fyrir Sinfóníuhljómsveit, tilnefnt sem verk ársins.

Í dag vinnur Haraldur sem kennari, tónsmiður og útsetjari.

„Ég hef einu sinni áður sent inn lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins. en það var lagið Þakklæti inn árið 2007.  Það komst ekki inn þá en náði vinsældum með Buffinu snemma árs 2008", segir Haraldur. Þá tóku Menn ársins þátt í keppninni sama ár með laginu If You Were Here eftir Þórarin Freysson, sem eitt sinn plokkaði bassa með sveitinni.

Texta lagsins Gefst ekki upp samdi Sváfnir Sigurðarson, sem er einnig í hljómsveitinni Mönnum ársins með Haraldi sjálfum.


 Hlusta á lagið


« Til baka