Hlusta

simakosning info

Senda inn efni

Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is

Höfundar

mánudagur 4. jan. 2010

Haraldur G. Ásmundsson - You Are The One

 

You Are The One er fyrsta lagið sem Haraldur sendir inn í Söngvakeppni Sjónvarpsins og það kom honum skemmtilega á óvart að það hafi verið valið til þátttöku.

Haraldur og söngkonan/textahöfundurinn Kolbrún Eva Viktorsdóttir kynntust í gegnum sameiginlegan tónlistaráhuga. Haraldur og félagi hans voru ráðnir til að spila á skemmtistað foreldra Kolbrúnar og þar var hún að afgreiða við barinn. Haraldur var að leita að söngkonu til að syngja inn á lag sem hann átti til og var bent á að tala við Kolbrúnu. Hún ákvað að slá til.

„Það gekk nú bara svo vel að ég kolféll fyrir bæði henni og söngnum hennar," segir Haraldur.

Þau eru nú hjón og eiga saman tvö börn, þar að auki á Haraldur eitt barn frá fyrra sambandi. Haraldur og Kolbrún fóru að semja tónlist saman og settu saman hljómsveitina Myst. Þau áttu lagið „Here For You, sem var eitt af mest spiluðu lögum á Bylgjunni árið 2005. Ári síðar gaf Myst út diskinn „Take Me With You".

„Tónlistin er hluti af daglegu lífi okkar og við erum mjög spennt yfir því að taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins og öllu sem því fylgir," segir Haraldur.

Haraldur hefur nú tækifæri til að láta æskudraum sinn rætast; Að fá að sitja í græna herberginu og vera höfundur lags í Söngvakeppninni og/eða Eurovision.

Hér er hægt að hlusta á lag Haraldar, You Are The One.


 Hlusta á lagið


« Til baka