Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is
Halldór Guðjónsson er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði. Hann er menntaður húsasmíðameistari og starfar sem slíkur í dag.
Halldór er enginn nýgræðingur í tónlist. Hann hóf ferilinn á unglingsaldri með vini sínum Gunnari Friðþjófssyni í Hafnarfirði, en þeir gáfu út smáskífu saman og komu fram víða um land undir nafninu Gunni og Dóri.
Þá hefur hann tekið þátt í hinum ýmsu lagakeppnum og átt tólf lög í úrslitum samtals. „Þar á meðal átti ég lagið Dagur nýr í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2009, flutt af Heiðu Ólafs," segir Halldór.
Halldór semur mikið fyrir aðra. Undanfarin ár hefur hann meðal annars samið lög við texta Ronald C. Kerst. Ronald er frá Georgetown í Illinois í Bandaríkjunum. Þar hefur hann starfað sem trommuleikari, en hin síðari ár hefur hann einbeitt sér meira að texta og ljóðagerð. „Samstarf okkar hefur verið afar gjöfult," segir Halldór, en lagið I Believe In Angels er eitt þeirra sem þeir hafa unnið að saman.
Hlusta á lagið