Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is
Grétar Sigurbergsson er fæddur í Reykjavík, næstyngstur fjögurra bræðra.
Grétar lærði geðlækningar, aðallega í Linköping, Svíþjóð. Hann starfaði um árabil á geðdeildum Landsspítala og Borgarspítala og rekur eigin stofu á Læknastöðinni í Kringlunni. Þá var Grétar einnig yfirlæknir á Réttargeðdeildinni að Sogni í Ölfusi frá stofnun hennar 1993 um þriggja ára skeið. „Ég var feginn að hætta í því starfi, enda mætti það takmörkuðum skilningi stjórnvalda, að mínu mati."
Í febrúar 1988 skrifaði Grétar grein í Morgunblaðið um bjórmálið fræga. Olli hún allmiklu uppnámi bæði í læknastétt og á alþingi. „Ég gerðist, einn geðlækna, talsmaður þess að bjór yrði leyfður á Íslandi og fékk ég miklar skammir fyrir í blaðagreinum og í ræðum þingmanna. Mér fannst gaman að komast á þennan hátt í Alþingistíðindi."
Grétar samdi sitt fyrsta lag, Þú ert mér allt, algerlega óvart, að eigin sögn. Hann sendi það inn í Dægurlagasamkeppni RÚV sumarið 1999, ásamt nokkrum öðrum lögum, en rúmlega 200 lög bárust alls í keppnina. Tvö af lögum Grétars komust í 8 laga úrslit og svo fór að hans fyrsta lag varð sigurlag í keppninni. „Þetta var með því skrýtnasta og óvæntasta sem ég hafði lent í. En áhugi minn var rækilega vakinn og síðan hafa lagasmíðar verið mér mjög gefandi tómstundaiðja."
Grétar hefur átt þrjú lög í úrslitakeppnum Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þau voru tvö árið árið 2001, Æskuást og Komdu til mín, flutt af Páli Rósinkrans og Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur. Árið 2009 átti Grétar lagið Close To You sem Kristín Ósk Wium flutti.
Árið 2006 lét Grétar gamlan draum rætast. „Ég gaf út disk, sem inniheldur 12 af lögum mínum." Diskinn notar hann mikið í lækningaskyni og hann gefur hann sjúklingum sínum. „Þeir hafa sumir sagt mér að hann sé bæði róandi og jafnvel á við besta svefnlyf!"
Eiginkona Grétars er Kristín Hallgrímsdóttir og þau eiga 3 börn.
Hlusta á lagið