Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is
Bryndís Sunna Valdimarsdóttir bjó sín fyrstu ár á bóndabæ í Reykjavík sem hét Fossvogsblettur 45. Þaðan flutti hún í sveit í Austur Landeyjarnar þar sem hún æfði söng þar fyrir framan kindurnar. Það skilaði henni í söngvakeppni Hemma Gunn með lagið Stoppaðu nú.
Hún var í ýmsum sönghópum og hljómsveitum, til dæmis Söngsystrum sem tók þátt í uppfærslunni Bítlaárin á Hótel Íslandi, hljómsveitinni K.F.U.M and the andskodans, Doría, Tjaldið fellur og 8-Villt.
Í dag vinnur Bryndís Sunna hjá Yggdrasil, sem flytur inn lífrænar matvörur og snyrtivörur.
Þetta er í þriðja sinn sem Bryndís Sunna á lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins. "Árin 2006 og 2007 átti ég lögin Hjartaþrá og Áfram. Þau voru bæði flutt af Sjonna Brink, sem er keppinautur minn nú í ár.
Daði Georgsson er uppalinn á Flúðum í Hrunamannahreppi, sonur papriku- og sveppabóndans þar. Þaðan fór hann á Laugarvatn í menntaskóla og flutti síðan á mölina árið 1996.
Hann lauk námskeiði í upptökustjórn frá Stúdíó Sýrlandi 1999 undir stjórn Ara Daníelssonar. Daði er í dag sjálfstætt starfandi hljóðmaður og upptökustjóri.
Daði hefur verið í hljómsveitum meira og minna síðan hann var í grunnskóla á Flúðum. "Nöfn hljómsveitanna sem ég hef verið í hafa oft verið skemmtileg. Þar má til dæmis nefna "Sjáumst í Sundi", "Riff Reddhedd", "8-Villt."
Þess má geta að einn af gestakennurum á fyrrnefndu námskeiði í upptökustjórnvar Óskar Páll, keppinautur Daða í Söngvakeppninni í ár.
Hér má hlusta á lagið þeirra Bryndísar Sunnu og Daða.
Hlusta á lagið