Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is
Birgir hefur verið viðriðinn tónlistarbransann á Íslandi frá unga aldri. Hann var í hljómsveitunum Upplyftingu, Þúsund andlitum og klæddist bláum glimmerjakka með Sálinni hans Jóns míns.
"Nú hef ég atvinnu af því að hljóðrita tónlist og hef verið að því frá því um tvítugt," segir Birgir. Hann rak eitt stærsta stúdíó á landinu í um áratug, Stúdíó Stef, þar sem fjölmargir tónlistarmenn tóku upp tónlist sína. Nú síðustu árin hefur Birgir verið að koma upp aðstöðu fyrir nýtt stúdíó, Tónn.is, sem einnig er umboðsskrifsstofa og útgáfufyrirtæki. Tónn.is gaf út nokkrar plötur á síðasta ári.
Birgir hefur áður komið við sögu Söngvakeppni Sjónvarpsins, en fyrir um 20 árum söng Rut Reginalds lag eftir hann í forkeppninni. "Það er orðið svo langt síðan að ég man varla hvað það heitir," segir Birgir hlæjandi. Þá fór hann með til Malmö árið 1992 þegar Sigríður Beinteinsdóttir og Sigrún Eva Ármannsdóttur fluttu lagið Nei eða já fyrir Íslands hönd, en hann og síðarnefnda söngkonan voru þá par. "Það var ein skemmtilegasta ferð sem ég hef farið um ævina", segir Birgir. "Þar var ofsalega skemmtilegt fólk og við lentum í hinum ýmsu ævintýrum."
Eurovision bakterían blundaði alltaf í Birgi, þótt hún hafi dofnað með árunum. Birgir segist hafa verið upptekinn af því að vinna tónlist fyrir aðra og þannig gleymt að hlúa að eigin lagasmíðum. Hann sendi til dæmis lagið sitt ekki sjálfur inn í ár. "Það er Ingva Þór Kormákssyni textahöfundi að þakka að ég er með í ár, þar sem hann sendi lagið inn. Ég kann honum miklar þakkir fyrir."
Upphaflega var texti lagsins The One á íslensku og eftir Ingva Þór Kormáksson. Hinsvegar ákvað Birgir að lagið yrði flutt á ensku og samdi nýjan texta með aðstoð Ingva.
Birgir er í sambúð og á fjóra drengi.
Hér má hlusta á lag Birgis, The One.
Hlusta á lagið