Hægt er að senda myndir, myndskeið eða annað tengt keppninni á netfangið songvakeppni2010@ruv.is
Albert Guðmann þekkja margir. Hann var meðal annars í hljómsveitinni Kung fú í 5 ár en er nú í hljómsveitinni "Íslenska sveitin". Þar syngja þau Lísa „Idol" og Svenni „Luxor".
Þá tók Albert þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2003 ásamt Kristni Sturlusyni með lagið "Sá þig". Í keppninni í fyrra átti hann lagið Lygin ein, sem eiginkona hans Kaja söng. Albert hefur einnig tekið þátt í lagakeppni Ljósanætur og gefið út plötu með Kaju og Kung fú. Von er á nýrri plötu með Kaju og Edgari Smára á þessu ári.
Albert er eineggja tvíburi, en bróðir hans Magnús Guðmann Jónsson hefur einnig tekið þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Það var árið 2007 með lagið Vetur, en Albert lauk við að vinna lagið fyrir bróður sinn.
„Fólki sem ég þekki ekki neitt hættir til að heilsa mér, faðma mig og jafnvel kyssa," segir Albert brosandi. „Sumir halda að ég sé voðalega góður með mig þegar ég geng framhjá þeim úti á götu án þess að heilsa, en þá er það líklega bara bróðir minn á ferðinni sem hreinlega þekkir manneskjuna ekki!"
Albert og Kaja eiga saman eina dóttur.
Hlusta á lagið