Þjóðaratkvæðagreiðslan er á morgun

 

Á morgun verður kosið. Dagskrárliðurinn "Fréttir vikunnar" fjallar um þjóðaratkvæðagreiðsluna.  Andrés Jónsson, almannatengill og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur fara yfir flókið, umdeilt og sögulegt mál.

„Mottu-mars" er hafinn, átak Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein. Barmmerki verða seld á morgun um allt land og þarf fleiri sjálfboðaliða en nú hafa meldað sig. Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins er á línunni.

Firðir eru fullir af síld - allavega í Grundarfirði. Gísli Einarsson sigldi um Breiðafjörðinn með Runólfi Guðmundssyni, skipsstjóra, og stjórnarformanni útgerðar og fiskvinnslufyrirtækisins G.Run. :

Hvað er verið að tala um þegar lagt er til að Ísland verði griðastaður alþjóðlegrar fjölmiðlunar? Þessi spurning var rædd á hádegisfundi í Háskóla Íslands í dag. Hugmyndin er að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi verndun tjáningar- og upplýsingafrelsis. Einn af flutningsmönnum tillögunnar er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Erla Ósk Ágeirsdóttir.

Spéspegill Sighvats Jónssonar á sínum stað, sem og saga Jóhönnu Sveinsdóttur úr daglega lífinu.

Gestur okkar í dag er líka hinn þekkti höfundur lagnafrétta sem birtust í morgunblaðinu í 16 ár. Sigurður Grétar Guðmundsson, vatnsvirkjameistari kemur í heimsókn en pistlar hans urðu nærri 700 þegar lagnafréttir voru lagðar af. Hann mun sinna ráðgjöf á sýningunni Viðhald 2010 í Smáralind.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir segir frá kosningafréttum RÚV vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á morgun.


föstudagur 5. mars 2010
« Til baka Deila

HLEKKIR