Skopmyndateiknari hættir

 

Halldór Baldursson skopteiknari segist eiga meiri samleið með Fréttablaðinu en Morgunblaðinu og mun hætta á því síðarnefnda um næstu mánaðarmót.

Flug hefur raskast heldur betur í dag, bæði utan og innanlands vegna verkfalls flugumferðastjóra. Forstjóri Icelandair segir þetta beint gegn leiðarkerfi fyrirtækisins en það verður fyrir mesta raskinu vegna þessa svo ekki sé minnst á farþegana. Fimm flugvélar áttu að fara frá Íslandi á á verkfallstímanum en ferðum þeirra var seinkað til klukkan ellefu. Rúmlega sjöhundruð manns áttu bókað flug með þeim. Seinni partinn varð líka rask og því talið að þetta hafi haft áhrif á ferðalög um 2000 manns.

Formaður flugumferðarstjóra, segir Ottó Garðar Eiríkssson er á línunni - þetta snýst ekki um hærri krónutölu í launum sagði hann ef marka má ummæli hans í spjalli í dag.

Fyrirtækið Atmos hefur nú vottun frá Google sem endursölu- og þjónustuaðili fyrir Google Apps, svokallaði samskipta- og samvinnulausn stórfyrirtækisins Google. Þóranna K. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri og annar eigandi Atmos greinir frá þessari miklu nýjung sem Microsoft nær ekki að halda í við.

Í byrjun mánaðarins tók til starfa íslensk - kínverskur barnaskóli í Wande þorpinu í Sichuan héraði. Hjalti Þorsteinsson, sem hefur í í áratug búið í Sjanghæ er prímus mótor í byggingu skólans eftir mikinn jarðskjálfta vorið 2008. Hjalti sem er giftur þarlendri konu nýtti sér tenglsanet íslenskra fyrirtækja í Kína nefnt IBF (Icelandic Business Forum) en sjálfur var hann með ráðgjafar og innkaupafyrirtæki fyrir Íslendingana. Skólinn sem Íslendingarnir byggðu nefnist Barnaskóli vonarinnar.

 

Rannsókn lögreglunnar í mansalsmálinu þótti skila miklu og talið að hún hafi orðið til þess að sakfelling varð í héraðsdómi yfir 5 litháum hér á landi. Er lögreglan farin að starfa öðruvísi en áður? Og leiða upplýsingar hennar til þess að hægt verði að hjálpa lögreglunni í Litháen í tengdum málum? Þessu svarar Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum á jákvæðan hátt þótt ekki hafi formlega borist beiðni frá lögreglu ytra um gögn sem safnað í hérlendri rannsókn.

Platan Hesthúsið, sem kom út í dag, fjallar ekki um reiðvísur hestamanna heldur er hún fyrsta íslenska plata graðfolarapparans Didda Fel.

Winnie Mandela gagnrýnir harðlega Nelson Mandela - Gunnar Hrafn Jónsson, fréttamaður segir frá fyrrverandi og umdeildri eiginkonu Mandela og hvað hún lætur nú hafa eftir sér um fyrrverandi eiginmann og frelsishetju Suður Afríku í Evening Standard, bresku blaði.

Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir þrjár til fimm ferðir Herjólfs á dag vera byltingu þó hann óski eftir hundrað ferðum til viðbótar á ári. Í nýjum tillögum bæjarráðs Vestmannaeyja til Vegagerðinnar um áætlun vegna Landeyjahafnar er ítrekað mikilvægi þess að fjórar ferðir verði milli lands og eyja alla daga ársins, vegna vöruflutninga og samstarfs sveitarfélaga á svæðinu. Elliði Vigninsson bæjarstjóri í Eyjum segir að bærinn muni líklega ekki gera aðra tilraun til að yfirtaka rekstur skipsins, þar sem ekki virðist vera vilji til þess hjá samgönguyfirvöldum að semja við bæinn.


miðvikudagur 10. mars 2010
« Til baka Deila

HLEKKIR