Fimm Litháar sem ákærðir voru fyrir mansal síðasta október voru í dag dæmdir sekir í Héraðsdómi Reykjaness. Þeir fengu fimm ára fangelsi. Íslendingurinn sem var ákærður í sama máli var sýknaður. Málið uppgötvaðist þegar 19 ára litháísk stúlka var flutt hingað til lands. Hún trylltist í flugvél á leið til Íslands og hélt því fram að henni væri haldið nauðugri. .
Við ræðum við Gunnhildi Pétursdóttur, réttargæslumann fórnarlambsins, stúlkunnar sem er 19 ára.
Þetta er fyrsti dómurinn um mansal sem fellur hér á landi. Heyrum frá héraðsdómi í dag, þegar Sigurður Sigurðsson, lögmaður lýsir yfir sekt síns skjólstæðings.
Hildur Jónsdóttir, formaður sérfræðiteymis um mansalsmál og aðgerðaráætlunar ríkistjórnarinnar gegn mansali segir dóminn sigur fyrir ákæruvaldið og lögregluna.
Fyrsta konan í sögu Óskarsverðlaunanna fékk í nótt Óskarinn fyrir leikstjórn, Katheryn Bigelow fyrir The Hurt Locker. Við tölum við Hollywood - framleiðandann Sigurjón Sihvatsson og Karl Júlíusson, mynhönnuð sem unnið hefur mikið með Katheryn og var þakkað sérstaklega í þakkarræðu hennar. Karl er núna við tökur í Nýju Mexíkó.
Og í dag eru eitt hundrað ár liðin frá því Clara Zetkin, þýsk baráttukona fyrir kvenfrelsi og sósíalisma, fékk samþykkt á alþjóðlegri ráðstefnu í Kaupmannahöfn að 8. mars skyldi helgaður baráttu kvenna.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fór yfir stöðuna að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu í upphafi þingfundar í dag og formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Ben sagði ríkisstjórnina í henglum og hann væri tilbúinn í þingkosningar.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingflokksformaður VG og Guðbjartur Hannesson Samfylkingu, formaður fjárlaganefndar eru gestir í dag. Guðfríður Lilja segir einingu meðal VG þingflokks - þótt orðrómur sé um annað og Guðbjartur segir ekki annað komið í ljós en að þverpólitísk samninganenfnd í Icesave sé samtaka - þrátt fyrir orðróm um annað.
Sveinn Helgason fréttaritari í Washington er á línunni og Freyja Dögg Frímannsdóttir talar við Kristínu Ástgeirsdóttur, jafnréttisstýru um kyn og loftlagsbreytingar - karlar menga víst meira en konur.
Í dag voru kynntar á Akureyri niðurstöður viðhorfskönnunar sem Rannsóknamiðstöð ferðamála gerði síðastliðið sumar meðal brottfararfarþega í flugi Iceland Express frá Akureyri til Kaupmannahafnar. Óskar Þór Halldórsson ræddi um niðurstöður könnunarinnar og ferðaþjónustu á Norðurlandi við Edward Huijbens, forstöðumann Rannsóknamiðstöðvarinnar, og Jón Þorvald Heiðarsson, hagfræðing við Háskólann á Akureyri.
Vorboðunum fjölgar nú dag frá degi í sunnanáttinni með hækkandi sól. Einhverjir úr farfuglahópnum munu þó hafa snúið við þegar þeir heyrðu að það væri ennþá verið að rífast um Icesave. Nema hvað... Fjórar skúfendur og duggandarpar sáust við Akureyri í gær og eru það fyrstu farfuglar þessara tegunda í vor. Þá voru fimm tildrur á Fáskrúðsfirði. Fyrstu sílamáfarnir sáust svífa yfir Þingholtunum í Reykjavík og þar kyrja nú svartþrestir trillur sínar þegar lýsir af degi. Töluvert er komið af álftum í Meðalland og stokkendur eru komnar þar í tún. Skúmur tilkynnti komu sína í síðustu viku.