Ráðherraábyrgð

 

Ákveði Alþingi að ákæra einstaka ráðherrar ríkisstjórnar Geirs Haarde fyrir hugsanleg brot á lögum um ráðherraábyrgð í kjölfar rannsóknar á aðdraganda efnahagshrunsins mun fyrningin þessara hugsanlegu brot að minnsta kost ekki koma í veg fyrir það.

Hvað bíður ráðherra sem hefur ekki sinnt starfi sínu nægilega vel?

Atla Gíslason formaður sérstakrar þingnefndar er í viðtali. Nefnind mun hafa það verkefni að vinna úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar sem kemur út á nmæstu dögum og meðal annars ákveða hvort Alþingi sækir einstaka ráðherra til saka.

Laun og kjör ýmissa stétta eru óráðin - umhverfi til að semja um kjarabætur er ekki hvetjandi - engir peningar til, rekstrarerfiðleikar fyrirtækja og niðurskurður um allt. Þetta hefur þó ekki dregið tennurnar úr ýmsum stéttum sem krefjast kjarabóta eða leiðréttingar.

Lögreglumenn mættu í tugavís fyrir utan Borgartúni 12 þar sem Ríkissáttasemjari er til húsa. Kjaradeila lögreglunnar hefur staðið mjög lengi, lögreglumenn hafa verið samningslausir í rúma níu mánuði. Í dag klukkan tvö mættu þeir í tugavís til að sýnda samninganefnd stuðning sinn. Við hittum lögreglumenn þarna í dag. Ræddum við Arinbjörn Snorrason, formann Lögreglufélags Reykjavíkur.

Sjúkraliðar hafa einnig verið í löngum samningaviðræðum deila þeirra farin sömu leið og löggunnar.

Fyrsta boðaða verkfall flugumferðarstjóra hefst í fyrramálið takist ekki samningar fyrir þann tíma.

Starfsmannafélag Reykjavíkur hefur áhyggjur af því hve langt er gengið á rétt launþega í því atvinnuástandi sem nú er. Aðalfundur félagsins var í gærkvöldi og fjörugur fundur þar - en um 4000 manns tilheyra þessu félagi. Garðar Hilmarsson - formaður Starfsmannafélag Reykjavíkur er í viðtali.

Starfsmenn hvalaskoðunarfyrirtækisins Norðursiglingar á Húsavík hafa í vetur dvalið í danska bænum Egernsund á Jótlandi, við að breyta ríflega 35 ára gömlum eikarbát í glæsilega skonnortu. . Ágúst Ólafsson hringdi í dag í Hörð Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóra Norðursiglingar.

Á Álftanesi var kosið um helgina, íbúarnir vilja flestir í faðm annars sveitarfélags og þá helst Garðabæjar. Pálmi Þór Másson, Bæjarstjóri Álftanessbæjar segir enn mikla óvissu um framtíðina.

Borgin Concepción, næsta stærsta borg Chile, færðist rúma þrjá metra í jarðskjálftanum mikla á dögunum. Höfuðborgin Santíagó er 28 sentímetrum vestar. og Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, fjórum sentímetrum vestar eftir skjálftann við Chile. Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur er á línunni frá Akureyri.

Kuldaboli krækir klaufunum í Spán - það var öngþveiti í Barselónuborg og víðar um héraðið í gær vegna snjókomu. Og 3.NÞ í Kvennó hefur háleitar hugsjónir. Það er góðgerðardagur hjá þeim í dag.

 

Stjórn og stjórnarandstaða áttu símafund með Lee Buchheit, formanni íslensku Icesave samninganefndarinnar í dag þar sem framhaldið á lausn Icesave málsins var rætt. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagðist að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun, líta svo á að stjórn og stjórnarandstaða muni vinna saman að úrlausn Icesave-málsins. Sigmundur Davíð, formaður Framsóknar og Bjarni Ben, formaður Sjálfstæðisflokks tjá sig um framvindu málsins. Samninganefndin skoðar áfram lagaleg atriði, segir Bjarni.


þriðjudagur 9. mars 2010
« Til baka Deila

HLEKKIR