Einn frægasti ræningi í heimi - Ronnie Biggs hefur verið látinn laus úr fangelsi. Jack Straw, dómsmálaráðherra Bretlands, náðaði hann af mannúðarástæðum, enda er Biggs illa haldinn af lungnabólgu og er vart hugað líf. Ronnie Biggs var handtekinn og dæmdur til þrjátíu ára fangelsisvistar, fyrir aðild sína að einu frægasta ráni sögunnar; lestarráninu mikla, hvorki meira né minna. Það var framið þann áttunda ágúst 1963 - þannig að á morgun eru 46 ár liðin frá ráninu.
Einn frægasti ræningi í heimi - Ronnie Biggs hefur verið látinn laus úr fangelsi. Jack Straw, dómsmálaráðherra Bretlands, náðaði hann af mannúðarástæðum, enda er Biggs illa haldinn af lungnabólgu og er vart hugað líf. Ronnie Biggs var handtekinn og dæmdur til þrjátíu ára fangelsisvistar, fyrir aðild sína að einu frægasta ráni sögunnar; lestarráninu mikla, hvorki meira né minna. Það var framið þann áttunda ágúst 1963 - þannig að á morgun eru 46 ár liðin frá ráninu.
Lestarránið mikla er eitt stærsta rán í sögu Bretlands. Fimmtán manna hópur stöðvaði póstlestina milli Glasgow og Watford, með því að eiga við umferðarljós við lestarteinanna þannig að lestin þurfti að stöðva á rauðu ljósi. Þetta gerðu þeir með því að hylja græna ljósið með hanska og tengja rafhlöðu við peruna í því rauða. Ekki svo flókið. Þeir stukku þá um borð í lestina, fleygðu lestarstjóranum fyrir borð, losuðu vagnana frá og óku lestinni um kílómetra leið að flóttabílunum; tveimur Land Rover jeppum. Einn vagn fékk þó að fljóta með - vagninn sem geymdi peningana. Alls 2,6 milljónir punda - sem er stórfé og var enn meira virði árið 1963. Það hefur verið giskað á að í dag jafnaðist þetta á við um 40 milljónir punda. Eða átta milljarða íslenskra króna, sé miðað við veiklulegt gengi þeirra þessa dagana. Þegar glæpaflokkurinn hafði flutt peningana yfir í jeppana, brunuðu fimmtánmenningarnir að afskekktum bóndabæ, þar sem þeir skiptu góssinu og fóru hver í sína áttina.
Fimm dögum eftir ránið fékk lögreglan símhringingu frá manni sem ekki vildi láta nafns síns getið. Hann benti þeim á bóndabæinn. Þegar lögreglan kom þangað voru ræningjarnir á bak og burt. Það voru fingraförin þeirra hinsvegar ekki. Það er skemmst frá því að segja að þrettán af ræningjunum voru handteknir og dæmdir til tukthússvistar. Ronnie Biggs fékk þrjátíu ára dóm.
Þegar Ronnie hafði setið í fangelsi í rúmt ár strauk hann úr prísundinni ásamt nokkrum öðrum föngum. Þeir grófu ekki göng, yfirbuguðu enga verði, söguðu ekki í sundur neina rimla. Nei - félagi þeirra utan fangelsisins fleygði einfaldlega stiga yfir fangelsismúrana á hefðbundnum útivistartíma fanganna. Stigann notuðu þeir svo til að klifra óáreittir yfir vegginn og inn í sendiferðabíl sem beið þeirra. Býsna auðvelt.
Ronnie Biggs náði að flýja til Parísar með fúlgur fjár, sem yfirvöld höfðu aldrei fundið. Þar varð hann sér úti um ný persónuskilríki og lét lýtalækna breyta útliti sínu. Hann flaug svo til Ástralíu en þurfti að flýja þaðan til Brasilíu, þegar upp um hann komst. Bresk yfirvöld höfðu engin tök á að fá hann framseldan þaðan, þannig að Ronnie Biggs gat lifað þar óáreittur og án þess að þurfa að hafa nokkrar áhyggjur af laganna vörðum.
Árið 2001 var Ronnie Biggs orðinn fársjúkur maður. Hann gerði því samkomulag við bresk stjórnvöld um að hann gæfi sig fram, gegn því að honum yrði tryggð læknisaðstoð. Bresk yfirvöld gengu að því og hnepptu hann í fangelsi. Þar sem hann hefur dúsað síðan, allt þar til núna - þegar hann var náðaður af mannúðarástæðum - enda við dauðans dyr.
Það vill svo til að Ronnie Biggs átti þrjátíu og fjögurra ára afmæli daginn sem ránið var framið. Hann fæddist þann áttunda ágúst árið 1929 og verður því áttræður á morgun - daginn sem 46 eru liðin frá ráninu. Frjáls maður.
-GP