Bandaríski svikahrappurinn Bernard Madoff hefur verið dæmdur í 150 ára fangelsi fyrir að svíkja allt að 70 milljarða Bandaríkjadala út úr grunlausum fjárfestum. Hann varð líka uppvís að stórfelldu peningaþvætti og hinu og þessu misjöfnu. Ef við setjum þetta í íslenskt samhengi þá samsvarar þetta tæpum 9000 milljörðum íslenskra króna, sé miðað við gengi dagsins. Reikningurinn vegna IceSave hljóðar upp á rúma þúsund milljarða. Þar af þurfa Íslendingar að borga tæpa 700. Gott og vel. Bernard þessi Madoff stal semsé nærri þrettánföldum skuldunum sem eru að setja Ísland á hliðina, setja ríkisstjórnarsamstarfið í uppnám, skapa pólitískan og samfélagslegan glundroða og rústa orðspori Íslands erlendis - svo fátt eitt sé nefnt.

En Bernard var semsagt dæmdur til 150 ára tukthússvistar. Hinsvegar klóra menn sér mikið í höfðinu yfir því hvað varð eiginlega um alla peningana, því aðeins einn og hálfur milljarður bandaríkjadala hefur fundist. Vissulega átti Bernard Madoff fín hús og flotta bíla. Hann átti líka Lúxussnekkjuna Tuddann, eða Bull upp á ensku (sem einnig má lesa sem "bull" á íslensku). Svo átti hann aðeins minni snekkjur sem hétu Sitting Bull og Little Bull. Hann átti eiginlega bara allt sem hann gat hugsað sér að eiga. Þessar persónulegu eigur hans eru samt ekki nema einn agnarlítill dropi í peningahafinu, eitt örsmátt sandkorn í á fjárplógsströndinni, eitt einasta blaktandi strá á peningaengjum Madoffs - svo ég leyfi mér að gerast dálítið skáldlegur. Hvar er afgangurinn?
Þeir sem rembast nú við að rekja peningaslóðina eftir Bernard Madoff vita í rauninni ekki hversu mikla peninga er að finna. Tap fjárfesta er metið frá um 13 milljörðum dala, en Madoff sjálfur hefur viðurkennt að ólögleg fjármálaumsvif sín mætti meta til fyrrnefndra 70 milljarða dala. Eitthvað af þessu fé þurfti Madoff að borga þegar fjármálamarkaðurinn hrundi - þar hefur verið giskað á um 7 milljarða. Hvort hann hinsvegar borgaði það sem hann þurfti að borga er enn óljóst. Einhverjar illa fengnar milljónir dala verða síðan teknar af viðskiptafélögum skúrksins. T.d. félögum sem þáðu hundruð milljóna dala fyrir að vísa fjárfestum til Madoffs. Fjárfestum sem hann rúði svo inn að skinni.
Nú óttast menn líka að Madoff og hans hyski, hafi stungið milljörðum og milljörðum bandaríkjadala undan - til útlanda. Þar séu spikfeitir bankareikningar sem enginn lifandi vegur er að komast í. Bandarísk stjórnvöld vita í fyrsta lagi ekki hvaða bankar þetta eru og þótt þau vissu það væri lítil von til þess að þau gætu sótt þessa peninga.
Þetta hljómar nokkuð kunnuglega - þó íslensku auð-gosarnir, útrásarvíkingarnir og gírugu bankamennirnir séu, með fullri virðingu, óttalegar pissudúkkur við hliðina á Madoff og hans níu þúsund milljörðum. En hér hefur því vitaskuld verið haldið á lofti að milljarðar á milljarða ofan liggi á útlenskum og ósnertanlegum bankabókum. Og sé svo - þá segja margir að við munum aldrei sjá þá peninga aftur. En fari svo að lítið heimtist af illa fengnum íslenskum krónum - að því gefnu að þær hafi verið illa fengnar, sem margt bendir óneitanlega til. Fari semsagt svo að lítið fáist til baka - þá er hundrað og fimmtíu ára tukthússvist eftilvill ágætis sárabót?