BNA 2009. Ls: Lee Daniels. L: Gabourey Sidibe, Paula Patton, Mo'Nique, Mariah Carey. Háskólabíó. 1:49 klst. B.i. 12 ára.
Stjörnur: * * * *
Þetta er gífurlega sterk og krefjandi bandarísk ræma sem snertir fjölda viðfangsefna og skilar þeim á krassandi máta.Verkið er tilnefnt til sex Óskarsverðlauna, m.a. sem besta kvikmyndin, fyrir bestu leikstjórnina og fyrir bestan leik kvenna, bæði í aðal- og meðhlutverkum. Precious hefur þegar verið tilnefnd til um 60 annarra verðlauna. Nafn sitt dregur ræman af aðalpersónunni, Claireece Precious Jones, en precious merkir líka dýrmæti eða gersemi. Sagan gerist 1987 í borgarhlutanum Harlem í New York, en þar eru íbúar að mestu leyti fátækir og með dökkt litaraft. Löngum hefur verið talið vafasamt fyrir hvítt fólk að vera mikið á ferli. Þessi kvikmynd tekur það meðal annars að sér að sýna að þar sé hættulegt fyrir alla að búa og vera á ferli. Aðalpersónan er Precious, 16 ára blökkustúlka, vel yfir kjörþyngd, ólétt af öðru barni sínu, lítt læs, hefur mátt þola margra ára kynferðislega misnotkun. Hún er hins vegar hæfileikarík og ákveðin, en þarf að berjast fyrir tilveru sinni, sjálfstæði og framtíð. Hún býr hjá viðskotaillri móður, þær eru bláfátækar. Precious skiptir um skóla og er svo heppin að lenda hjá góðum kennara sem lætur sér annt um hana. Henni fleygir fram á margan hátt en jafnframt þarf hún að glíma við samanlagt erfiðari málefni en nokkrum er ætlandi að þola. Ræman sýnir þessar glímur þar sem allt er að. Nú skyldi maður ætla að það væri lítt áhugavert að fylgjast með krufningi á eymd. En hið stórkostlega við verkið Precious er að þetta tekst án þess að jarða okkur í þunglyndi. Þarna er af miklu listfengi leikið á marga strengi. Meðal annars er grallaralegur og hlýr stúlknahópurinn í nýja skólanum það sem lyftir frásögninni á viðráðanlegt plan. Hér er á ferðinni stórt listaverk með tröllaukinn boðskap sem að breyttu breytanda á við víða um heim, líka hér.
Ólafur H. Torfason