BNA 2008. LS: Kathryn Bigelow. L: Jeremy Renner, Anthony Mackie, Brian Geraghty, Guy Pearce.
Smárabíó. Regnboginn. 2:11 klst. B.i. 16 ára.
Þessi verðlaunaða og óvenju sannferðuga bandaríska stríðsræma ögrar áhorfandanum og knýr hann til umhugsunar og leiðir til nytsamlegrar gagnverkunar. Handritið skrifaði Mark Boal, sjálfstætt starfandi blaðamaður sem um skeið vann með sprengjuleitarhópi bandarískra liðssveita í Írak samtímans. Efnisþráðurinn lýsir persónunum á tveimur vígstöðvum: Annars vegar taugatrekkjandi líferni sprengjusérfræðinganna og sérsveitarmanna á vígvellinum og hins vegar sambandi þeirra við fjölskyldu og vini heima fyrir. Lögð er áhersla á hvernig stríðsmennskan verður að fíkn.
Reynslumikill leikstjórinn Kathryn Bigelow magnar upp spennu og dýpt og sprengingarnar í sálarlífinu. Hremmingarnar á vígstöðvunum taka mann rækilega til fanga. Ræman hefur form heimildamyndar og gefur sér góðan tíma til að toga mann með sér og gera í raun að ákveðnum þátttakanda. Karl Júlíusson var listrænn útlitsstjóri verksins. Þetta er með bestu barnarísku ræmum síðari ára. Hurt Locker var tilnefnd til Gulljónsins sem besta ræman á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 2008 og hlaut aðalverðlaun fjölmiðlunarsamtaka kaþólskra, SIGNIS. Hún hefur hlotið ýmsar aðrar eftirsóttar viðurkenningar. Leikstjórinn gerði áður m.a.
Strange Days (1995) The Weight of Water (2000)
K-19 The Widowmaker (2002).
Olafur H. Torfason 9. júlí 2009.