BURKINA FASO 8600 KM.

 

Ísland 2010. Ls: Vera Sölvadóttir og Þorsteinn J. Heimildamynd, sýnd á vefnum thorsteinnj.is. Um 50 mín.

Stjörnur:  * * *

Þetta er sérstæð og vel útfærð íslensk heimildamynd sem flakkar á milli Afríku og Íslands eins og ekkert sé og grípur á grundvallarmálefnum í núinu, þ.e.a.s. á tímabilinu 2008-2009.. Höfundarnir fylgja eftir hjónunum Hinrik og Gullý sem á efri árum taka að sér hlutverk í hjálparstarfi ABC samtakanna í Burkina Faso, sem margir þekkja líka undir fyrra nafni, Efri Volta. Þar búa um 15 milljónir manna, að mestu í mikilli fátækt, einna mestri á jörðinni, nú er talið að þetta sé þriðja fátækasta land heims. Viðleitninni í eymdinni er í myndinni öðru hvoru stillt upp við hliðina á kreppunni á Íslandi og mótmælum á Austurvelli. Orð eins og nauðþurftir, ríkidæmi og fátækt fá afstæðar merkingar. Hinrik og Gullý kaupa tvo jeppa á Íslandi og ásamt Paulo, brasilískum félaga, sigla þau með farartækin til Rotterdam og þaðan til Vestur-Afríku og aka síðan þúsundir kílómetra inn í heimsálfuna  til þau ná áfangastað sínum. Þau reyna að koma öðrum jeppanum í verð til að fjármagna ferðalagið og hjálparstarfið  í Burkina Faso. Annað veifið birtast samtöl við Hinrik, Gullý og Paulo, en hann hefur unnið við matvælaiðnað hjá SS á Hvolsvelli. Paulo setur ferðalagið og ástandið á Íslandi og í Burkina Faso í samhengi við ástandið í heimalandi sínu Brasilíu. Þetta er allt saman nýtt og ferskt í íslenskri heimildamyndagerð, spannaðir víðir bogar á jarðkringlunni, en líka farið víða um hugsjónaheiminn. Sýnt er inn í hugarheim ferðalanganna, trúrækni þeirra, fórnarlund og bænalíf, sem allt hitt grundvallast á. Verkið er allt létt og jákvætt, þrátt fyrir hið níðþunga viðfangsefni. Hinrik og Gullý eru ekki hrædd við að fara nýjar leiðir og hið sama á við um höfundana, Veru Sölvadóttur og Þorstein J. Þau ljá myndinni líflegt flæði þar sem áhorfandanum er gert kleift að upplýsast á sem einfaldastan hátt, án formlegheita og vaðals. Eða eins og þau segja í kynningu: “Þetta er mynd um afstöðu, hvað hægt er að gera þegar ekkert virðist vera hægt að gera.” Og höfundunum tekst að auka við skilning okkar, áhuga og meðlíðan.

 

Ólafur H. Torfason

 

« Til baka Deila

HLEKKIR