Taggart
Taggart - The Rapture
Skoski sakamálamyndaflokkurinn Taggart hóf göngu sína árið 1983. Í honum segir frá slyngum rannsóknarlögreglumönnum í Glasgow sem fást við snúin sakamál.
Flokkurinn heitir eftir lögreglufulltrúanum sem var aðalkarlinn í myndunum til að byrja með, andhetjunni fýlulegu og fámálu, Jim Taggart. Hann er nú genginn á vit feðra sinna fyrir löngu og eins hægri hönd hans og arftaki, Mike Jardine.
Eftir standa þau Jackie Reid og Stuart Fraser og nýjasti liðsmaðurinn er hinn ofursvali plebbi, Robbie Ross. Núverandi yfirmaður þeirra er Matt Burke, harður nagli og durtslegur. Þessi vaska sveit fæst við morðmál af öllum mögulegum toga, jafnt í undirheimum sem í efri lögum samfélagsins.
Þættirnir hafa notið gríðarlegra vinsælda í heimalandinu og hafa verið seldir til meira en 140 landa.
Atriði í myndunum eru ekki við hæfi barna.