Heimur hugmyndanna

Ævar Kjartansson hefur fengið Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum munu þeir spjalla um eðli hugmynda almennt en síðan fá til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt. Þættirnir verða endurfluttir á mánudagskvöldum og þá má síðan nálgast á vef RUV og hlaðvarpi. Netfang þáttarins: aevark@ruv.is
Umsjón Ævar Kjartansson og Páll Skúlason

008981-0024

Flutt: sunnudagur 21. mars 2010 kl. 09.03.
Endurflutt: 22. mars 2010 kl. 21.10

008981-0023 Hagnýt siðfræði.

Flutt: sunnudagur 14. mars 2010 kl. 09.03.
Endurflutt: 15. mars 2010 kl. 21.10

Umsjónarmenn Ævar Kjartansson og Páll Skúlason. Gestur þeirra i þættinum er Ástríður Stefánsdóttir, læknir og siðfræðingur.

008981-0022 Um þjóðfélagssáttmálann.

Flutt: sunnudagur 7. mars 2010 kl. 09.03.

Um þjóðfélagssáttmálann fyrr og nú. Björn Þorsteinsson, heimspekingur verður gestur Páls Skúlasonar og Ævars Kjartanssonar.

008981-0021 Hvernig lítur sagnfræðin til framtíðar?.

Flutt: sunnudagur 28. feb. 2010 kl. 09.03.

Framtíðin í Heimi hugmyndanna. Hvernig lítur sagnfræðin til framtíðar? Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði er gestur Páls Skúlasonar og Ævars Kjartanssonar.

008981-0020 Hversu skynsamleg er skynsemin?.

Flutt: sunnudagur 21. feb. 2010 kl. 09.03.

Hversu skynsamleg er skynsemin? Sigurður Kristinsson fostöðumaður hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri ræðir við Pál Skúlason og Ævar Kjartansson í þættinum.

008981-0019 Um sálfræði.

Flutt: sunnudagur 14. feb. 2010 kl. 09.03.

Ævar Kjartansson og Páll Skúlason ræða hugmyndina um sjálfræði við Guðmund Heiðar Frímannsson, prófessor við Háskólann á Akureyri