Breiðstræti
Tvisvar í mánuði einskorðar umsjónarmaður Breiðstrætis sig við einn einstakling úr tónlistarlífi Íslendinga og þar ríður Garðar Cortes á vaðið þriðjudaginn 6. Október. Þátturinn er endurfluttur á laugardögum kl. 19:00. Netfang þáttarins:
breidstraeti@ruv.is Umsjón: Ólöf Sigursveinsdóttir.
Flutt:
þriðjudagur 23. feb. 2010 kl. 14.03.
Breiðstræti fjallar um nýjar útgáfur úr erlendum tónlistarheimi. Þar eru stjörnur sem tala máli sínu eins og fiðluleikarinn Hillary Hahn sem nú var að gefa út Bach í samvinnu við þau Matthias Goerne, tenór og Christine Schäfer, sópran. Hillary Hahn segir sjálf frá þessu verkefni sem er óskaverkefni frá hendi hennar sjálfrar. Einnig fá hlustendur að heyra fyrsta hljóðrit af óperunni Teseo eftir Händel sem fór á fjalirnar í Þýaskalandi í tilefni af dánarártíð Händels. En þar fer á kostum ein mesta vonin í söngheiminum í dag, kontratenórinn, Franco Fagioli frá Argentínu sem stundum er kallaður tvíburabróðir Bartoli í söngheiminum. Ótrúleg stjórn hans á röddinni hefur komið áheyrendum til að undrast og halla sér aftur í sætunum. Í þættinum verður Helgi Jónsson til taks til að svara spurninginni hvað er Opera Seria. En Helgi er tónlistarsögukennari við Listaháskóla Íslands. Umsjón: Ólöf Sigursveinsdóttir
Flutt:
þriðjudagur 16. feb. 2010 kl. 14.03.
-Portrettþáttur um kammerhópinn Adapter.
Meðlimir Adapter eru íslenskir og þýskir. Adapter leikur á opnunartónleikum Myrkra músíkdaga í ár. Þeir segja frá samtímatónlistinni og upplifun sinni á henni. Að hverju leita þau í vinnu sinni og hvert eru markmiðin? Þess á milli hljómar m.a. glæný tónlist af geisladisk eftir þýsk tónskáld sem kemur út eftir tvær vikur í flutningi þessa frábæru tónlistarmanna sem sérhæfa sig í leik á nýjum verkum. Umsjón: Ólöf Sigursveinsdóttir.
Flutt:
laugardagur 13. feb. 2010 kl. 19.00.
Í Breiðstræti verður spjallað við slagverksleikarann, Frank Aarnink. Hann er atkvæðamikill þegar kemur til að frumflytja ný íslensk verk og er einn af þeim fjölmörgu erlendu tónlistarmönnum sem sest hafa hér að til að starfa og leika. Frank er fastráðinn slagverksleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan árið 2001 og með honum eru til fjölda upptaka með fjölbreyttri tónlist þar sem kennir margra grasa. Þar má finna lög þar sem Frank leikur með Memphismafíunni allt til stærri tónverka þar sem hann leikur á margvíslegar tegundir slagverks eins og t.d. marimbu eða japanskar musterisbjöllur. Umsjón: Ólöf Sigursveinsdóttir