Hringsól
Umsjón Magnús R. Einarsson.
Flutt:
mánudagur 29. mars 2010 kl. 13.00.
Flutt:
mánudagur 22. mars 2010 kl. 13.00.
Endurflutt:
26. mars 2010 kl. 21.10
Bergrós Arna Jóhannesdóttir heitir ung Reykjavíkurmær átti sér draum um að læra á brimbretti. Hún lét þann draum ræasta þegar hún fór í ferðalag til Suður Ameríku og þar á meðal á brimbrettaskóla í Costa Rica. Hún segir frá þessu ævintýri sínu í þessum þætti Hringsólar.
Flutt:
mánudagur 15. mars 2010 kl. 13.00.
Elín Þorgeirsdóttir fór 1997 ásamt fjölskyldu sinni landleiðina frá Danmörku til Kenýa. Hún heillaðist svo af landi og þjóð að hún, ásamt eiginmanni sínum, stofnaði ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í Afríkuferðum. Í þættinum segir hún söguna af fyrstu ferðinni til Afríku.
Flutt:
mánudagur 8. mars 2010 kl. 13.00.
Birna Þórðardóttir er einn af fyrstu íslendingunum til að heimsækja Norður Koreu. Þar dvaldi hún á annan mánuð og segir í þættinum frá kynnum sínum af landi og þjóð.
Flutt:
mánudagur 1. mars 2010 kl. 13.00.
Sigurður Grímsson kvikmyndagerðarmaður segir frá dvöl sinni á Bissagos eyjum við vesturströnd Afríku. Þangað fór hann til að gera heimildarmynd um mæðraveldi sem þar ríkti um aldir, en endaði með mynd um manndómsvígslu ungra manna.
Flutt:
mánudagur 22. feb. 2010 kl. 13.00.
Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður, kennari og fyrrum aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, segir frá dvöl sinni í Íran. Halla dvaldi þar þar í tvígang, 2005 og 2007 þegar hún var að afla sér efnis í meistaraprófsritgerð sína í alþjóðasamskiptum. Hún gaf út bók í nóvember 2008, „Slæðusviptingar - raddir íranskra kvenna“, sem er byggð á ritgerðinni. Halla hefur fylgzt með þróun mála í Íran æ síðan.