Einu sinni var... - Maðurinn

Il était une fois... l'homme

Einu sinni var... er franskur teiknimyndaflokkur þar sem stiklað er á stóru í sögunni frá upphafi til okkar tíma.

Þættirnir voru gerðir árið 1978 og hafa verið sýndir áður í Sjónvarpinu við miklar vinsældir.

Fyrsta syrpan er um manninn. Í henni eru 26 þættir og þar er saga mannkynsins rakin í stórum dráttum frá upphafi til okkar tíma. Sömu persónurnar: Fróði, Pétur og félagar þeirra og fjendur koma fyrir í öllum þáttunum og takast á við vandamál og verkefni hvers tíma.

Þetta eru stórskemmtilegir og fræðandi ævintýraþættir og hafa verið sýndir í fjölmörgum löndum. Árið 2005 urðu þeir að deiluefni í Kanada eftir að þáttur úr syrpunni var sýndur í barnaskóla inúíta í Quebec-fylki. Í framhaldi af því bannaði skólanefndin að þróunarkenningin yrði kennd í skólum en þeirri ákvörðun mótmæltu heimamenn kröftuglega.

Höfundur þáttanna er Albert Barillé. Ólöf Pétursdóttir þýddi og um leikraddir sjá Halldór Björnsson og Þórdís Arnljótsdóttir.

Nánari upplýsingar um þættina er að finna á vefslóðinni http://www.procidis.com/gb/debut.html

005042-0025 23. þáttur.

Sýnt: miðvikudagur 24. mars 2010 kl. 17.30.

005042-0024 22. þáttur.

Sýnt: miðvikudagur 17. mars 2010 kl. 17.30.

005042-0023 21. þáttur.

Sýnt: miðvikudagur 10. mars 2010 kl. 17.30.

005042-0022 20. þáttur.

Sýnt: miðvikudagur 3. mars 2010 kl. 17.30.