Sporlaust
Without a Trace
Þótt vandasamt sé að rannsaka þjófnaðarmál og dularfull dauðsföll þykir enn erfiðara að hafa uppi á fólki sem hverfur.
Jack Malone og samstarfsfólk hans í sérsveitinni er í stöðugu kapphlaupi við tímann þá þrjá sólarhringa eftir mannshvarf meðan enn eru taldar líkur á að hinn horfni finnist á lífi.
Aðalhlutverk leika Anthony LaPaglia, Poppy Montgomery, Marianne Jean-Baptiste, Enrique Murciano, Eric Close og Roselyn Sanchez.
Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna.
Sýnt:
mánudagur 22. mars 2010 kl. 21.15.
Jack reynir að hafa uppi á lækni sem gerir ólöglegar fóstureyðingar á konum sem mansalshringur hefur þvingað í vændi - og hverfur sjálfur við þá eftirgrennslan.
Sýnt:
mánudagur 15. mars 2010 kl. 21.15.
Starfsmaður á spítala hverfur og hópur stríðsandstæðinga er grunaður um að hafa numið hann á brott.
Sýnt:
mánudagur 8. mars 2010 kl. 21.15.
Einkaspæjari hverfur og margir gætu átt sök á því.
Sýnt:
mánudagur 1. mars 2010 kl. 21.15.
Jólasveinn sem skemmtir börnum í verslunarmiðstöð hverfur en hann var áður talinn undrabarn og kann að vera flæktur í glæpastarfsemi.
Sýnt:
mánudagur 22. feb. 2010 kl. 21.15.
Kona hverfur mánuði eftir að hún er látin laus úr fangelsi og sérsveitin veltir því fyrir sér hvort orsökina sé að finna í vafasamri fortíð hennar.
Sýnt:
mánudagur 15. feb. 2010 kl. 21.15.
Í þessum þætti hjálpast sérsveitin og Gil Grissom úr CSI-þáttunum að við að klófesta grunaðan morðingja.