Plötuskápurinn

Plötuskápurinn er þáttur, þar sem þáttarstjórnendur fara um víðan völl. Spila og fjalla um tónlist sem þeir finna í plötuskápum sínum - og þar er af nógu að taka. Efnistök verða fjölbreytt og dregin verður fram alls kyns tónlist frá ýmsum tímum. Ekkert er heilagt í þeim efnum, hvort sem það kallast popp, rokk og ról, þungarokk, djass, reggí, kántrí, þjóðlagatónlist, blús, sálartónlist eða hvaða nafni menn vilja nefna þær stefnur sem á vegi verða. Samhliða verður gluggað í tónlistarsöguna og dregin fram skemmtileg og fræðandi atriði sem henni tengjast.

Plötuskápurinn er á dagskrá Rásar 2 öll föstudagskvöld frá kl. 19.30 - 22.00. Umsjónarmenn eru Gunnlaugur Sigfússon, Halldór Ingi Andrésson og Sigurður Sverrisson.