Dordingull

Útvarpsþátturinn Dordingull er á dagskrá á Rás 2 á fimmtudagskvöldum klukkan 23.00. Í þættinum fjallar Valli Dordingull um þungarokk, pönk og allskyns harðkjarna tónlist. Í þættinum er lögð áhersla á það nýjasta sem er að gerast í harðkjarna heiminum, hvort sem það er hérlendis eða erlendis. Lögð er sérstök áhersla á að kynna íslenskt efni og fá góða gesti í heimsókn til að taka púlsinn á íslensku rokklífi.