Bergsson & Blöndal

Margrét Blöndal og Felix Bergsson vakna með hlustendum Rásar 2 á laugardagsmorgnum í þættinum Bergsson og Blöndal. Margrét er oftast nær í hljóðveri á Akureyri og Felix í Reykjavík en jafnframt hefur þátturinn verið sendur út héðan og þaðan, innanlands sem utan.

Þátturinn er á ljúfum nótum í anda umsjónarmannanna. Meðal fastra liða eru Topp 10 listinn, þar sem umsjónarmenn skoða allt á milli himins og jarðar og fá hlustendur til að hjálpa sér við að gera skemmtilega lista. Tónlistarmenn koma i heimsókn og spila í hljóðveri og umsjónarmenn fylgjast vel með því sem er að gerast í menningarlífi landans. Furðufréttir, hvunndagshetjur, helgarblöðin, skemmtilegt fólk, hlátur og almenn vitleysa.

Tónlistin er auðvitað stór hluti þáttarins og þar glitrar á eldri perlur í bland við nýja og ferska tónlist Rásar 2. Bergsson og Blöndal bjóða upp á lárétta og lóðrétta laugardagsmorgna á Rás 2