Matreiðsluþættirnir Grillað fjalla, eins og nafnið gefur til kynna, um grillmennsku eins og hún gerist best.
Umsjónarmenn þáttanna eru matreiðslumennirnir Völundur Snær Völundarson, Sigurður Gíslason og Stefán Ingi Svansson, sem að samanlagt hafa áratugareynslu af matargerð og eru öllu vanir. Völundur hefur verið búsettur á Bahama-eyjum undanfarin áratug þar sem hann rekur veitingastað samhliða því að sinna öðrum verkefnum en bæði Sigurður og Stefán Ingi starfa í Veisluturninum í Kópavogi.
Allir eru þeir eldheitir áhugamenn um grillmenningu og vita fátt skemmtilegra en að kveikja í kolunum og galdra fram einstakt góðgæti.
Þættirnir eru einstaklega fjölbreyttir og skemmtilegir og maturinn eftir því. Á grillinu verður allt frá einföldum forréttum til sykursætra eftirrétta enda fátt sem ekki er hægt að matreiða á góðu grilli.
Allar uppskriftir þáttanna verða aðgengilegar á vefnum
grillad.is.