Hlusta | nýr gluggi »
Eftir nokkra daga eða þann 1. júní verður norræn landslags-sýning opnuð í Sjanghæ í Kína. Sýningin er hluti af EXPÓ heimssýningunni þar sem þemað er "betra borgarumhverfi - betra líf". Framlag Íslands er Hellisheiðavirkjun. Íslenskar systur koma að þessari sýningu og önnur þeirra er reyndar aðalhönnuður sýningarinnar í heild sinni. Hún heitir Dagný Bjarnadóttir og er landslagsarkítekt. Systir hennar heitir Hafdís Bjarnadóttir, hún er tónskáld og sér um hljóðin fyrir sýninguna. Bríet Konráðsdóttir hitti þær systur á teiknistofunni.
Athugasemdir