Hlusta | nýr gluggi »
Mikil umræða hefur skapast um ljósabekkjanotkun, og þá sérstaklega um ljósabekkjanotkun unglinga. Fara til dæmis fermingarbörnin í ljós fyrir ferminguna? Fræðsluherferð fer alltaf af stað á þessum árstíma á vegum Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar meðal annara undir slagorðinu „hættan er ljós" og nú er að koma út fræðslurit um sortuæxli. Ætli það sé ekki alltaf minnna og minna að gera á sólbaðstofunum? Bríet Konráðsdóttir kannaði málið.