Sigurlaug Margrét Jónasdóttir hefur haft áhuga á mat síðan hún sat upp á eldhúsbekk ömmu sinnar og horfði á hana steikja fisk og búa til besta hrísgrjónagraut í heimi.
Mataráhuginn óx til muna eftir ársdvöl í Flórens þar sem hún uppgötvaði gleðina við að fara á matarmarkað og prófa spennandi ítalska rétti sem kættu bragðlaukana. Hún fann út að besta ástarsaga allra tíma er þegar tómaturinn og basilblöðin hittust á ákváðu að malla saman af kátínu , sælkerum til mikillar gleði.
Það verður bragðgóð skemmtun á rás eitt þegar SMJ grúskar í uppskriftum og matarupplifun fólks frá öllum heimshornum. Við skoðum hvaða áhrif mannlíf hefur á matarmenningu í hinum ýmsu löndum. Við drögum fram sérkennilegar áhugaverðar og spennandi uppskriftir í gömlum og nýjum matreiðslubókum, gefum hugmyndir af góðum veislum og bendum á spennandi veitingastaði sem engin má missa af! Svo má ekki gleyma tónlistinni sem verður bæði bragðgóð og ilmandi!

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir
Smj hefur skrifað um mat fyrir Gestgjafann, Húsfreyjuna og M blaðið, en hefur á síðustu árum unnið útvarpsþætti á rás eitt um mat eins og t.d. „Kampavín og Kaloríur" og „Hið ómótstæðilega bragð „ og „Sumarsnakk"Í vetur mun hún sjá um matarþáttinn „Matur er fyrir öllu- gómsæt skemmtun"