Eins og flestir vita þá fara fram sveitastjórnakosningar á laugardaginn og að sjálfsögðu verður Lillan með puttana á púlsinum.
Stjórnmálaskýrararnir Steindi JR., Sveppi, Þykkur Einarsson og Búi Bendtsen skoða stöðuna og kanna breytingarnar tónlistinni í þessari kosningarbaráttu.
Sigmar Guðmundsson verður á línunni frá Ósló og Júróvisjónar rétt áður en fyrsta atriði stígur á stokk.
Þá verður valin besta sagan í stórskemmtilegum leik: Besta stundin með Litlu Hafmeyjunni og fær sigurvegarinn 15 þúsund krónu gjafabréf frá Tapas barnum.
Síðasta spurningarkeppni Litlu Hafmeyjunnar fer í loftið og verður spurt um pólitík!
Tóm heimska að missa af þessu, tóm heimska!
Athugasemdir