Velkomin á Leynivefinn, þar sem hægt er að senda bréf, hlusta á framhaldssöguna og lesa bréf frá Leynifélögum. Hér er líka hægt að fá upplýsingar um næstu fundi og hlusta á eldri fundi.
Endilega sendið tölvupóst með gátum, bröndurum og sögum, eða bara smábréf um það sem þið eruð að gera. Við birtum þau hér á síðunni og lesum þau upp á fundi.
Leynifélagið er útvarpsþáttur sérstaklega ætlaður börnum á aldrinum sex til tíu ára. Leynifélagið heldur fundi sína á mánudags-, þriðjudags- og miðvikudags- og föstudagskvöldum klukkan átta og fundunum er útvarpað beint til félagsmanna á Rás 1. Allir sem hlusta á fundina eru meðlimir í Leynifélaginu en mælt er með því að fullorðnir hlusti með börnum.

Ein uppáhaldsbók Brynhildar er Bróðir minn
Ljónshjarta. Hún er ekki alveg viss hvort henni finnst grænn eða blár fallegri og það leiðinlegasta sem hún veit um er að ryksuga og að horfa á sjónvarpið.

Kristínu Evu finnst Leitin að Nemó vera skemmtilegasta bíómynd í heimi. Uppáhaldsdýrin hennar eru kisa og api og hún veit ekkert betra en að fá fiskibollur og gulrætur í matinn.