SPENNA OG SKEMMTUN Í ALLT SUMAR!

 

SAKAMÁLALEIKRIT Á FIMMTUDAGSKVÖLDUM UM KL. 22:20  & VASALEIKHÚSIÐ Á MÁNUDAGSKVÖLDUM KL. 21:10.

 Tvö framhaldsleikrit verða flutt síðla á fimmtudagskvöldum í sumar. Með þeim minnist Útvarpsleikhúsið tveggja leikstjóra sem settu mark sitt á starf leikins efnis fyrr á árum, þeirra Flosa Ólafssonar og Hildar Kalman.

Fyrra sakamálaleikritið er í 5 þáttum og hefst 24. júní, „Því miður, skakkt númer", eftir Allan Ullman og Lucielle Fletcer og var leikstjóri þess og þýðandi Flosi Ólafsson, sem jafnframt bjó verkið til útvarpsflutnings og er sögumaður í því.

Aðrir flytjendur eru kunnir og vinsælir leikarar þess tíma: Helga Valtýsdóttir, Helgi Skúlason, Haraldur Björnsson, Baldvin Halldórsson, Jón Sigurbjörnsson, Indriði Waage, Bryndís Pétursdóttir, Kristbjörg Kjeld, Brynja Benediktsdóttir, Ævar R. Kvaran, Helga Bachmann, Herdís Þorvaldsdóttir og Þorgrímur Einarsson

Það var frumflutt árið 1958

Seinna sakamálaleikritið er í 4 þáttum og hefst 29. júlí, „Tíu litlir negrastrákar", eftir Agöthu Christie, Ayton Withaker bjó verkið til útvarpsflutnings. Leikstjóri þess og þýðandi var Hildur Kalman.

Leikendur eru: Árni Tryggvason, Klemens Jónsson, Herdís Þorvaldsdóttir, Steindór Hjörleifsson, Haraldur Björnsson, Indriði Waage, Arndís Björnsdóttir, Brynjólfur Jóhannesson, Anna Guðmundsdóttir, Þorgrímur Einarsson, Róbert Arnfinnsson og Gunnar Eyjólfsson.

Það var frumflutt árið 1959

 

VASALEIKHÚSIÐ heimsækir Útvarpsleikhúsið

Óborganlegt Vasaleikhús Þorvaldar Þorsteinssonar á dagskrá öll mánudagskvöld kl. 21:10
Dagskrárgerð: Viðar Eggertsson


fimmtudagur 24. júní 2010
« Til baka Deila

HLAÐVARP

HLEKKIR