SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER KL. 14 verður flutt leikritið SÁLIN eftir Þorgeir Þorgeirson sem hann byggir á smásögu eftir Heinesen. Þorgeir er jafnframt leikstjóri. Hljóðvinnslu annaðist Vigfús Ingvarsson. Með hlutverkin fara Ingvar E. Sigurðsson og Edda Arnljótsdóttir.
Verkið segir frá hinum unga Leó sem sér móður sína í stúlku sem hann á ástarfund með. Ástin elur af sér lygi sem á að fegra lífið, en slík ást getur ekki endað nema á einn veg...
Upptakan er frá árinu 1993. Smásagan SÁL birtist fyrst í smásagnasafni Heinesens, Gamaliels besættelse sem kom út árið 1960. Íslenska þýðing smásagnasafnsins kom út árið 1978 og bar heitið Fjandinn hleypur í Gamalíel Íí íslenskri þýðingu Þorgeirs Þorgeirsonar.
Þátturinn Í VÆNGJUÐU MYRKRI, þáttur um færeyska skáldið William Heinesen var fluttur SUNNUDAGINN 9. OKTÓBER KL. 14. Hann var frumfluttur árið 2000 þegar öld var liðin frá fæðingu þessa merka skálds. Eiríkur Guðmundsson er höfundur þáttarins og þar er fjallað um líf hans og skáldskap, flutt brot úr sögum hans í þýðingu Þorgeirs Þorgeirsonar. auk þess flytur Gyrðir Elíasson þrjú frumort ljóð um Heinesen. Lesari ásamt umsjónarmanni er Þorgeir Þorgeirsson.